Hæj ég ákvað að lífga þessa síðu aðeins með einni sögu svona
meðan allir eru í prófunum og svona 
Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til
að fara reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum
á mér. Síðan fór ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega
sniðugt vax, auðvelt í notkun, sársaukalaust og það besta að maður
á að vera laus við hárin í 4-5 vikur..... og það var á tilboði!
Þannig að ég skellti mér á það.
Um kvöldið ég síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna,
ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim
úr ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum,
þetta var svona kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli
handanna til að hita áður en þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég
byrjaði að nudda renningana en sá fram á að það myndi taka alltof
langan tíma og fékk því snilldarhugmynd. Ég lagði þá bara á borðið
við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti hann í botn og
var nákvæmlega enga stund að hita þá. Síðan setti ég þá á leggina á
mér og....... þetta var.... heitt og alls. ekki. sársaukalaust!
En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur
gengist undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í
hvort sinn, þolir nú alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með
einum vaxstrimli. Þannig að ég hélt áfram, kláraði lappirnar og
eina rauðvínsflösku í leiðinni.
Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega
á óvart og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa
leiða til ýmissa skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með
börnin, þau voru enn sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku,
hitaði vaxrenning, setti annan fótinn upp á klósettið og skellti
renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!!
ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!! Ég var blinduð af
sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður en ég
náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að
rífa af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við
sársaukann þá gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.
Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur.
Ekki eitt einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur!
HVAR VAR VAXIÐ??? Ég leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið
mín..... allt vaxið af renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til
himins. WHY? Og gjörsamlega miður tók fótinn niður af klósettinu!
Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK! Ég gjörsamlega heyrði píkuna og
rasskinnarnar límast saman!
Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað
til bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði
að toga það af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það
leysast upp, bræða það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð
litið á hárblásarann en hvarf strax frá þeirri hugmynd þar sem mig
langaði ekki til að útskýra brunasárin á brunadeildinni niður á
Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax. Ég lét vatn renna í baðið,
svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota það til að pynda
óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir
pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.
Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki
vax! Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var
ég nú límd föst við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat
ég bjargað mér úr þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar
mislukkuðust, náði ég í Lady rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið
af! Ef ykkur langar til að vita hvernig það var legg ég til að þið
rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri rakvél, notið ekki vatn né
nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!
Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á
bjargvættinn minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi
nefnilega með í pakkanum svona vax remover. Ég hafði bara ekki
tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í bómull, hella slatta í
og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann! Það var eins
og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama því
helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði
allan þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði
mig 150% tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.
Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið.
Þrátt fyrir öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið!
Ekki. eitt. einasta!!!
Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af
rúminu.....
Hahaha sá þessa sögu á einhverri síðu og fannst hún brjálað
fyndin..lífgaði allavegna upp á kvöldið hjá mér....veit ekki með
ykkur... 
Hey ég keypti mér happadrættismiða hjá das og er með í 8
útdráttum og ég ætla sko að vinna
get unnið lexus og allt
hahaha pant vinna hann 
anyway farin á subway með stelpuskjátunum 